Project Description

Arndilly Fancy

Frábær veiðifluga.

Þessi frábæra fluga er í topp þremur hjá mér. Höfundur flugunnar er Megan Boyd frá Skotlandi sem var ein af bestu fluguhnýturum í heimi, þó svo að hún hafi aldrei stundað fluguveiði. Hún helgaði líf sitt þessari listgrein og lést árið 1988, 86 ára gömul. Nafnið á flugunni kemur frá veiðisvæði sem heitir Arndilly og er í ánni Spey. Þessi fluga hefur gefið mér marga góða laxa og fallega veiði. Ég hef einnig hnýtt hana með silfur búk og er hún gríðalega öflug þannig.